Hérna færðu fría HEILSUSKÝRSLU.

Velkomin/nn á Herbalife vefsíðu okkar hjóna, Birgis og Jóhönnu en við höfum starfað sem lífsstílsleiðbeinendur hjá Herbalife síðan í janúar 1999. 

Herbalife fyrirtækið hóf starfsemi árið 1980 og er nú farsælt starfandi í 70 löndum og í stöðugum vexti. Fyrirtækið er leiðandi framleiðandi á fæðubótar- og hreystivörum og einnig hefur Ytri Næringin, húðvörurnar, reynst framúrskarandi. Staða Herbalife Fyrirtækisins á NYSE (New York Stock Exchange) sýnir glöggt hve hróður þess vex jafnt og þétt.

"Herbalife Family Foundation" www.herbalifefamily.org, er afl innan fyrirtækisins sem hefur helgað sig því að bæta líf barna í neyð og erum við afar stolt af því að taka félagslega ábyrgð í gegnum starfið okkar sem lífsstílsleiðbeinendur hjá Herbalife. Herbalife er jú ekki einungis einstaklega öflugt næringar- og þyngdarstjórnunarfyrirtæki heldur hefur einnig á boðstólnum frábært viðskiptatækifæri sem vert er að kynna sér.

Herbalife nýtir á einstakan hátt austrænu þekkinguna á náttúruefnum og hin vestrænu vísindi og eru hámenntaðir og heimsþekktir læknar og vísindamenn í Ráðgjafanefnd Herbalife. Nóbelsverðlaunahafinn Dr. Luis Ignarro er þar á meðal annarra valinkunnra sem tryggja að vörurnar frá Herbalife standist ströngustu gæðakröfur og er ávallt farið með vörur Herbalife fyrirtækisins í gegnum Lyfjaeftirlit viðkomandi lands.  Linkur-ráðgjafanefnd

Herbalife leggur ríka áherslu á góða næringu og heilbrigðan lífsstíl. Með persónulegri þjónustu, vinnum við að því að finna góðar lausnir fyrir hvern og einn, allt eftir því hvaða árangri er verið að sækjast eftir.

Margir eru aðallega að sækjast eftir því að fá góðan morgunmat  og viðhalda hreysti, enn aðrir vilja fá öruggari og betri næringu í tengslum við íþróttaiðkun sína og vill stór hópur ýmist létta sig eða þyngja. Með hjálp Herbalife hafa milljónir manna um heim allan bætt heilsu sína og líðan.

Herbalife og Íþróttir. Herbalife vörurnar henta öllum í leik og starfi og eru frábær viðbótarnæring í tengslum við alla hreyfingu.  Íþróttafólk á heimsmælikvarða notar vörurnar frá Herbalife til þess að ná hámarksárangri og á Ólympíuleikunum í Bejing var Herbalife fyrirtækið stoltur styrktaraðili 7 keppenda og er Ragna Björg Ingólfsdóttir, hin frækna badmintonkona okkar, ein þeirra.  Vörurnar tryggja m.a. góða orku sem endist lengi, endurhleðslu eftir æfingu, uppbyggingu  vöðvamassa, minni hættu á meiðslum og betri vörn gegn veikindum.

Lífsstíll Herbalife byggist á að velja í bland við Herbalife næringuna, fjölbreytt, holl og lítið unnin matvæli.  Alla liti af ávöxtum og grænmeti, fisk, kjöt, kornmeti o.s.frv.

að stunda reglulega hreyfingu sem hentar hverjum og einum að gæta vel að nægjanlegri hvíld að drekka minnst 8-10 glös af vatni enda gegnir vatn m.a. lykilhlutverki í því að hjálpa líkamanum við úrvinnslu næringarefna og til að halda vökvajafnvægi í góðu horfi.

Hér á síðunni er að finna auk upplýsinga um vörurnar frá Herbalife, árangurssögur, ýmist fræðsluefni, ogkynningu á Herbalife fyrirtækinu og viðskiptatækifæri þess.

Vertu í sambandi við okkur ef þú óskar eftir ráðgjöf eða nánari upplýsingum. Fullum trúnaði heitið.

Jóhanna 698 0959 / Birgir 896 2277
/

 

Nánar...
 
Einn 2 og ehf - Birgir Jósafatsson - S. 896 2277 - Vsk.nr. 84889 - einn2og@simnet.is